EIGNAVER 460 6060
Margrétarhagi 4Mjög gott og fallegt einbýlishús á einni hæð samtals 157,7 fm. þar af bílskúr 26,3 fm. Þrjú svefnherbergi, góð steypt verönd, heitur pottur á verönd.
Nánari lýsing:
Forstofa flísar á gólfi, skápar.
Stofa og eldhús koma saman í opnu rými, parket á gólfi í stofu en flísar á gólfi í eldhúsi, góð hvít innrétting er í eldhúsi. Góður borðkrókur. Úr stofu er gengið út á steypta verönd þar er heitur pottur.
Svefnherbergin eru þrjú , öll með parketi og góðum skápum.
Baðherbergi er flísalagt, góð hvít innrétting, gluggi, handklæðaofn, " walk in sturta ".
Þvottahús tengir saman forstofu og bílskúr. Flísar á gólfi gólfi, mjög góð innrétting með góðri vinnuaðstöðu.
Geymsla er við forstofu. Parket á gólfi, hillur.
Bílskúr flísar á gólfi, góð innkeyrsluhurð.
Annað:Húsið er timburhús
með kraftsperruþaki, byggt á staðsteyptum undirstöðum.
Ysta klæðning útveggja er báruð málmklæðning.
Gluggar, hurðir og þakkantar eru hvítir en litur útveggja gráleitir.
Þak er með aluzink áferð.
Allir gluggar eru trégluggar, álklæddir að utan, með tvöföldu einangrunargleri (K-gler).
Aðalinngangshurð og svalahurðar eru úr timbri með gleri.
Varmaskiptir
Hiti í stétt fyrir utan og í bílaplani.
Húseignin er í einkasölu hjá Eignaveri fasteignasölu ehf.Nánari upplýsingar veita:Tryggvi s:
862-7919 /
[email protected]Arnar s:
898-7011 /
[email protected]Begga s:
845-0671 /
[email protected]