Eignaver 460-6060Drekagil 28 íbúð 702
Rúmgóð, björt og mikið endurnýjuð 3ja herbergja íbúð á efstu hæð með lyftu í fjölbýli á góðum stað í Giljahverfi. Glæsilegt útsýni þar sem fjallahringurinn fær að skarta sínu fegursta. Eignin er laus til afhendingar fljótlega. Nánari lýsing:
Forstofa, parket á gólfi og fatahengi.
Hol/gangur, parket á gólfi.
Hjónaherbergið er rúmgott og fínt, parket á gólfi og stór hvítur fataskápur.
Barnaherbergið er með parketi á gólfi og fataskáp.
Baðherbergið er mikið endurnýjað, flísar á gólfi og veggjum nánast uppí loft. Upphengt WC, góð sturta með glervegg. Fín innrétting og gluggi með opnanlegu fagi.
Eldhúsið er með fallegri, nýlegri spónlagðri innréttingu. Flísar á gólfi í eldhúsi sem og á milli skápa. Borðkrókur.
Stofan er rúmgóð og björt og úr stofu er
geggjað útsýni ! Parket á gólfi og úr stofu er farið út á svalir til vestur.
Geymsla í íbúð, parket á gólfi og hillur.
Annað:
- Sameiginlegt þvottaherbergi er á hæðinni sem tilheyrir þeim íbúðum sem þar eru, góð innrétting þar og þar er farið út á góðar yfirbyggðar þurrksvalir.
- Íbúðin er í suðurenda og með hreint út sagt geggjuðu útsýni, sérstaklega til suðurs og vesturs.
- Sérgeymsla er í kjallara. Lakkað gólf og hillur.
- Hjóla- og vagnageymsla er í sameign.
- Innihurðir, endurnýjaðar.
- Íbúðin er mikið sér á hæðinni.
Nánari upplýsingar veita:
Tryggvi s: 862-7919
[email protected]Arnar s: 898-7011
[email protected]