Múlasíða 9 f , Akureyri
EIGNAVER 460 6060
Múlasíða 9 F
3ja herbergja íbúð á 2. hæð í fjölbýlishúsi í Síðuhverfi. Suðursvalir.
Eignin skiptist í forstofu, þvottahús/geymslu, gang, baðherbergi, eldhús, stofu, sjónvarpshol og tvö svefnherbergi.
Nánari lýsing:
Forstofa með parketi á gólfi og opnu fatahengi.
Þvottahús/geymsla er innaf forstofu. Dúkur á gólfi, bekkplata með skolvaska, skápar og hillur.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum að hluta, baðkar með sturtutækjum og ágæt innrétting.
Eldhús með parketi á gólfi, flísar milli efri og neðri skápa, stæði fyrir uppþvottavél í innréttingu. Borðkrókur í eldhúsi og þaðan opið í stofu.
Stofa og sjónvarpshol eru rúmgóð með parketi á gólfi.
Svefnherbergin eru tvö, bæði með parketi á gólfum og skápur í hjónaherbergi. Úr hjónaherberginu er útgengi út á svalir til suðurs.
Eigninni fylgir sér geymsla í sameign á jarðhæð.
Annað:
- Gæludýr leyfð.
- Vel staðsett eign í nálægð við leik- og grunnskóla.
- Björt og rúmgóð íbúð.
- Fallegt útsýni.
Nánari upplýsingar veita:
Tryggvi s: 862-7919 / tryggvi@eignaver.is
Erla s: 868-7601 / erla@eignaver.is
Arnar s: 898-7011 / arnar@eignaver.is