Austurbrú 6 - 304 , Akureyri
Austurbrú 6-8. íbúð 304.
Glæsileg fimm herbergja íbúð á 3. hæð í nýju fjölbýli í miðbæ Akureyrar. Íbúðin er 172,6 fm og er norðurvestuhluta hússins. Á eignina er þinglýst bílgeymsla 0019 107,2 fm og 4,1 fm sérgeymsla í sameign. Bílastæði B007 í bílakjallara fylgir eigninni.
Samtals er eignin því skráð 283,9fm.
Í íbúðinni eru tvö baðherbergi, þvottahús, gangur, þrjú herbergi, skrifstofa, stofa og eldhús.
Verð bílgeymslu 0019 kr. 22.575.000.- er ekki innifalið í verði.
Nánari lýsing eignar:
Eldhús skilast fullbúið með tækjum frá Siemens. Spanhelluborð, vifta/háfur og bakaraofn með sjálfhreinsibúnaði, sambyggður örbylgju-bakaraofn fylgir að auki stærri eignunum. Innfelldur ísskápur og uppþvottavél fylgir öllum íbúðum. Innrétting í eldhúsi er sérsmíðuð af Brúnás, að hluta til spónlögð og að hluta til sprautulökkuð, með steinborðplötu.
Baðherbergi er með flísum á gólfi og á veggjum sturtu. Innréttingar frá Brúnás. Sturtugólf einhalla með glervæng, handklæðaofn og WC vegghengt. Stein borðplata á bekk.
Í svefnherbergjum og í forstofu spónlagðir skápar.
Eignirnar eru sérstaklega vandaðar og á frábærum útsýnisstað í hjarta Akureyar. Nánar um gæði og sérstöðu íbúðanna:
- Ísskápur og uppþvottafél fylgja, einnig sjálfhreinsandi ofnar í öllum íbúðum ásamt combi ofni í stóru 10 íbúðunum. Allir ofnar frá Siemens.
- Hæglokun á innréttingum allt frá Brúnás , granítplötur í innréttingum í eldhúsi og baðherbergi. Eldhúsviftur/háfar blása allir út.
- Hljóðeinangrunargler í öllum gluggum 3dB auka hljóðdempun. Innfelld lýsing fylgir öllum íbúðum og steypubox fyrir ljós eru hönnuð með tilliti til hljóðvistar.
- Húsin verða upphituð með Rehau gólfhitakerfi, hitastillir í hverju herbergi. Neysluvatn verður með varmaskipti og vélrænt útsog er frá baðherbergjum.
- Snjóbræðsla verður í bílageymslurampi og innangengt er úr kjallara húsanna inn í bílakjallara á tveimur stöðum. Pottrör eru í skólplögnum með tilliti til
hljóðvista.
- Sérmælt öryggi verður tilbúið á aðaltöflu frá hverri íbúð fyrir bílahleðslu sem hægt verður að leggja að hverju stæði fyrir sig, 3 fasa 16A.
- Allar neyslugreinar rafmangstöflu eru með lekaliða.
Eignirnar verða afhentar fullbúnar utan sem innan en þó án gólfefna. Nánari skilalýsing og upplýsingar fást hjá eftirtöldum aðilum :
Erla s: 868-7601 / erla@eignaver.is
Tryggvi s: 862-7919 / tryggvi@eignaver.is
Arnar s: 898-7011 / arnar@eignaver.is