Hafnarstræti 26a 206 , Akureyri
EIGNAVER 460-460
Hafnarstræti 26a íbúð 206 - Nýbygging
Rúmgóð 5 herbergja íbúð á 2. og 3. hæð með útsýni til vesturs - samtals 130,8 m²
Eignin skiptist þannig að á neðri hæð íbúðarinnar er forstofa, eldhús, stofa, snyrting, geymsla og eitt svefnherbergi. Á efri hæð eru tvö svefnherbergi og annað þeirra með fataherbergi innaf, sjónvarpsstofa og baðherbergi.
Tvennar svalir eru á íbúðinni til vesturs, annars vegar út úr stofu á neðri hæð og hins vegar út úr sjónvarpsstofu efri hæðar - skemmtilegt útsýni uppí skógivaxna brekkuna og gömlu húsin í Innbænum.
Nánari lýsing íbúðar:
Forstofa er með hvítum fataskáp. Sérinngangur af stigapalli.
Eldhús: Innrétting verður með hvítsprautuðum efri skápum en hnotu í neðri skápum. Eldhúsið verður fullbúið tækjum þ.e. svörtu keramikhelluborði (spam), stálviftu með vélrænu útsogi í innréttingu, bakarofni með grilli og kjöthitamæli, uppþvottavél og ísskáp. Stálvaskur er fræstur í borðplötu.
Baðherbergi: Gólf er flísalagt og veggir eru flísalagðir upp í loft með ljósum flísum. Baðinnrétting með handlaug með blöndunartækjum og spegli. Einnig er innrétting fyrir þvottavél og þurrkara á stærra baðherberginu. Klósett er vegghengt með innbyggðum vatnskassa. Vélrænt útsog er frá baðherbergi/þvottahúsi.
Í svefnherbergjum eru hvítir fataskápar.
Innihurðar eru hvítar og lit og á gólfum er eikarparket (harðparket eða vinylparket) með hljóðdeyfidúk, nema á baðherbergjum/þvottahúsi sem eru með flísum.
Geymslur - Íbúðinni fylgir ein geymsla í sameign. Geymslurnar eru staðsettar í millibyggingu innan við inngang og eru á jarðhæð fyrir íbúðir á jarðhæð, en á annarri hæð fyrir efri íbúðir.
Hverju húsi fylgir einnig sérstakt smáhýsi 18,5 m² að stærð, fyrir hjól og vagna. Smáhýsin eru upphituð og í þeim er bæði vatn og rafmagn.
Myndir eru úr sýningaríbúð
Allar nánari upplýsingar er að finna á heimasíðunni www.h26.is s.s. skilalýsingu og allar teikningar og afstöðumyndir.
Nánari upplýsingar veita:
Erla s: 868-7601 / erla@eignaver.is
Tryggvi s: 862-7919 / tryggvi@eignaver.is
Arnar s: 898-7011 / arnar@eignaver.is