Kristjánshagi 6 - 209 , Akureyri
EIGNAVER 460- 6060
Kristjánshagi 6 íbúð 209 Nýbygging - Lyfta Þessi íbúð uppfyllir skilyrði um hlutdeildarlán!
Íbúðin er 4ra herbergja 93,5 fm þar af geymsla 3,2 fm og samanstendur af: Forstofu, bað/þvotti eldhús, stofa, gangur, hjónaherbergi og 2 barnaherberfjum og geymslu 0113. Íbúðinni tilheyra svalir 9,6 fm út frá vesturhlið íbúðar
Myndir í auglýsingu eru úr fullbúinni sýningaríbúð.
Skilalýsing fjölbýlishúss við Kristjánshaga 6 íbúð 203
Frágangur utanhúss:
Bílastæði og gangstétt er steypt, eða malbikað. Lóðin er þökulögð með túnþökum.
Gólfefni:
Stigahús er með flísum á jarðhæð en teppi á stigagöngum. Hjóla- og vagnageymsla er flísalögð. Plastparket á alrými, herbergi og geymslu. Flísar eru á forstofu, baðherbergi/þvottahúsi og geymslu í sameign.
Forstofa í forstofu er tvöfaldur fataskápur með fataslá og hillum.
Baðherbergi baðinnrétting úr plastlagðri struktur-eik. Speglar og ljós fylgja. Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf. Vegghengt klósett, sturtuhorn úr gleri og blöndunartæki af vandaðri gerð.
Eldhús eldhúsinnrétting er úr plastlagðri struktur-eik. Bekkplötur eru úr formbeygðu harðplasti. Skúffubrautir, hengsli og höldur eru af viðurkenndri og vandaðri gerð. Í eldhúsinnréttingu er svart keramik-helluborð, stál -bakaraofn, innbyggð vifta, ísskápur og vaskur.
Herbergi í herbergi og geymslu er fataskápur með fataslá, hillum og 4 skúffubökkum. Í svefnherbergjum eru fataskápar.
Þvottahús í þvottahúsi er þvottatækjainnrétting úr plastlagðri struktur-eik.
Annað:
- Sólbekkir eru formbeygðir úr hvítu harðplasti.
- Innihurðir eru úr plastlagðri struktur-eik.
- Íbúðirnar eru með gólfhita.
- Öll raflögn er fullfrágengin þ.e. tengt í allar dósir og rofar komnir á sinn
stað. Síma- og sjónvarpslagnir í stofurými og herbergjum.
- Kappalýsing er á baðherbergi og eldhúsi, einnig fylgja loftljós í
þvottahúsi og baðherbergi.
- Geymsla fylgir öllum íbúðum.
- Íbúðir tilbúnar til afhendingar : Apríl – Maí 2021
Nánari upplýsingar:
Tryggvi s: 862-7919 / tryggvi@eignaver.is
Arnar s: 898-7011 / arnar@eignaver.is
Erla s: 868-7601 / erla@eignaver.is