Sólberg , Akureyri
EIGNAVER 460-6060
Sólberg lóð Svalbarðsstrandarhreppur
Mjög góður sumarbústaður á frábærum stað í landi Sólbergs. Bústaðurinn er 41,2 fm. ásamt 27,6 fm geymslu/baðhúsi. Samtals er eignin 68,8 fm. Góð verönd með heitum potti. Glæsilegt útsýni þar sem fjallahringurinn skartar sínu fegursta. Bústaðurinn stendur á 8.373 fm leigulóð. Hagstæður lóðarleigusamningur.
Nánari lýsing.
Bústaður 41,2 fm
Forstofa, flísar á gólfi og fatahengi.
Svefnherbergin eru tvö, flísar á gólfum herbergja.
Baðherbergið, flísar á gólfi, lítil innrétting, gluggi.
Eldhúsinnréttingin er með góðri nýlegri hvítri innréttingu. Flísar á gólfi. Góð vinnuaðstaða.
Stofa og eldhús koma saman í einu rými, flísar á gólfi og úr stofu er útgangur út á verönd til suðvesturs.
Svefnloft er rúmgott með parketi á gólfi.
Geymsla/baðhús 27,6 fm
Gangur flísar á gólfi, gengið er út á góða verönd, heitur pottur.
Baðherbergi flísar gólfi og veggjum, upphengt WC, sturtuklefi og lítil innréttting.
Geymsla með flísum á gólfi, góð innkeyrsluhurð, milliloft.
Annað:
- Góð verönd, vestan og sunnan til við húsið.
- Heitur pottur á verönd.
- Dúkkuhús sunnan við bústaðinn.
- Skemmtileg aðkoma og rúmgóð. Auðvelt að koma t.d. fyrir tjaldvögnum og/eða hjólhýsum.
- Stór og góð leigulóð með góðum lóðarleigusamningi.
- Skjólsæll staður
- Glæsilegt útsýni þar sem fjallahringurinn og Eyjafjörðurinn skartar sínu fegursta.
- Geymsla/baðhús er byggt 2006.
- Búið að endurnýja rafmagn og einangrun í gólfi og lofti í sjálfum bústaðnum.
- Frábær kostur fyrir stórfjölskylduna.
- Innbú fylgir með, þó ekki persónulegir munir.
- Virkilega vandaður og góður bústaður á frábærum stað.
- Eignin er í einkasölu hjá Eignaveri fasteignasölu ehf.
Nánari upplýsingar veita:
Begga s: 845-0671 /begga@eignaver.is
Arnar s: 898-7011 / arnar@eignaver.is
Tryggvi s: 862-7919 / tryggvi@eignaver.is