EIGNAVER 460 6060.
Þórunnarstræti 114, íbúð 101.
Glæsileg og vönduð þriggja herbergja íbúð í mikið endurnýjuðu húsi við Þórunnarstræti 114 á Akureyri. Íbúðin er samtals 105,8 fm. en þar af er sérgeymsla sem áður var bílskúr, 24,7 fm. sem gæti nýst sem útleigurými/íbúð.
ATH: Möguleiki er á að kaupa allt húsið í einu lagi, samtals fjórar íbúðir, góðar einingar til útleigu.
Frábær staðsetning: Miðsvæðis á Akureyri, rétt hjá sundlauginni !Húsið er tvær hæðir auk kjallara með 4 íbúðum, tveimur á hvorri hæð. Í kjallara eru rúmgóð geymslurými sem fylgja þremur af fjórum íbúðum og gefa mikla möguleika. Húseignin hefur verið endurnýjuð mikið undanfarið ár á vandaðan hátt og búið er að breyta húseigninni þannig að nú eru í henni fjórar glæsilegar íbúðir.
Gólfhiti í íbúðum. raf- og vatnslagnir hafa verið endurnýjaðar, skipt um glugga og gler og húsið málað að utan.
Fallegar innréttingar og gólfefni. Vandað hefur verið til verka í kringum allt húsið og m.a. þá hefur verið sett grjóthleðsla, gangstéttar og rúmgott bílaplan með snjóbræðslukerfi, rafhleðslustöð o.fl.
Íbúð 101Er þriggja herbergja á fyrstu hæð. Íbúðin sjálf er 81.1 fm. ásamt góðri 24,7 fm. sérgeymslu sem áður var bílskúr, samtals 105,8 fm. Eignin samanstendur af forstofu, svefnherbergi inn af forstofu, eldhúsi og stofu, hjónaherbergi og baðherbergi þar sem gert er ráð fyrir þvottavél.
Gengið er inn í þessa íbúð um sérinngang sem snýr til vesturs.
Fjögur bílastæði fylgja húsinu í heild.
Annað:
- Parket og flísar á gólfum íbúðar.
- Hvítir fataskápar í herbergjum og í forstofu.
- Hvítar innréttingar í eldhúsi og baðherbergi, viðarbekkir í eldhúsi.
- Verið er að breyta teikningum og skráningartöflu hússins og áætlað að það verði klárt innan fárra daga.
- Afhending eignar er við undirritun kaupsamnings.
Tryggvi s: 862-7919 / [email protected]Begga s: 845-0671 / [email protected]Arnar s: 898-7011 / [email protected]