EIGNAVER 460-6060
Brekatún 26 Akureyri.
Björt, falleg og skemmtilega hönnuð 4ra herbergja íbúð í raðhúsi með innbyggðum bílskúr á góðum stað í Naustahverfi. Samtals er eignin skráð 131,0 fm. Nánari lýsing:Forstofa, flísar á gólfi og fataskápur.
Hol/gangur, flísar á gólfi.
Eldhús, vönduð innrétting með mjög góðu skápa- og skúffuplássi, flísar á milli skápa, flísar á gólfi. Tvöfaldur ísskápur fylgir.
Stofa, parket á gólfi og útgangur úr stofu út á mjög rúmgóða verönd (ca 65 m2) með skjólveggjum. Nýtt sólskyggni úr áli yfir steypta hluta verandar. Lagnastokkur í vegg fyrir sjónvarp.
Svefnherbergin, eru þrjú, öll með vönduðum fataskápum. Parket á gólfum. Útganga úr hjónaherbergi út á verönd.
Baðherbergið, flísar á gólfi og veggjum, falleg innrétting. Sturtuklefi, baðkar, handklæðaofn og vegghengt WC. Þakgluggi.
Þvottahús, er á milli íbúðar og bílskúrs,hillur og gott vinnupláss, flísar á gólfi. Kalt geymsluloft er yfir þvottahúsi og gangi, fellistigi í þvottahúsi
Bílskúr, flísar á gólfi, upptekið loft í bílskúr að hluta, gott geymsluloft. Þriggja fasa rafmagn, 3x50 amp. Rafmagnstafla tilbúin fyrir uppsetningu á hleðslustöð rafbíla.
Verönd, steypt/timbur gólf í verönd, skjólveggir úr timbri. Ídráttarpípur frá bílskúr fyrir heitan pott. Timburhluti gólfs endurbyggður 2018. Gott viðhald.
Annað:- Upptekið loft í stofu og eldhúsi. Innfelld lýsing í stofu, holi og gangi. Næturlýsing við gólf, tengt birtunema. Nettenglar í öllum herbergjum.
- Gólfhiti í allri íbúðinni.
- Vandaðar sérsmíðaðar innréttingar.
- Snjóbræðslulagnir í stétt og plani, ótengdar í bílaplani.
- Alfa innréttingar, flísar og parket á gólfum og gólfhiti. Stór verönd með skjólveggjum til vesturs, með sólskyggni.
- Útilýsing á palli og húsi er á ljósnema.
- Hitastrengir í þakrennum.
- Stutt í leikskóla og skóla, leikvellir í nágrenninu. Frábært útivistarsvæði og golfvöllur í göngufæri. Matvöruverslun í göngufæri.
Húseignin er
einkasölu hjá Eignaveri.
Nánari upplýsingar veita:
Tryggvi s: 862-7919 /
[email protected]Arnar s: 898-7011 /
[email protected]