Austurvegur 26 , 630 Hrísey
71.000.000 Kr.
Einbýli/ Einbýlishús á tveimur hæðum
4 herb.
154 m2
71.000.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
2
Inngangur
Sér
Byggingaár
1933
Brunabótamat
89.750.000
Fasteignamat
35.700.000


EIGNAVER 460-6060

Austurvegur 26 - Hrísey 

Fallegt og mikið endurnýjað 105,5 fm einbýlishús á tveimur hæðum. Húsið er á sjávarlóð á suðurenda Hríseyjar með glæsilegu útsýni inn Eyjafjörðinn þar sem fjallahringurinn fær að skarta sínu fegursta. Stakstætt 49 fm frístunda/vinnustofa. Samtals er því eignin skráð 154,5 fm. Að auki eru óskráðar geymslur ca.50 fm. ásamt grillskála á verönd. Hrísey er perla Eyjafjarðar

Nánari lýsing
Efri hæð 56,9 fm
Forstofa  flísar á gólfi.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með snyrtilega innréttingu, sturtuklefa og glugga.
Stofa er rúmgóð með parket á gólfi.
Svefnherbergi eru tvö bæði rúmgóð með fataskápum, parket á gólfum.
Gengið er úr stofu á neðri hæð.

Neðri hæð 48,6 fm Gólfhiti á neðri hæð.
Borðstofa er rúmgóð með föstum bekkjum við vegg og flísar á gólfi.
Eldhús er flísalagt með snyrtilegri sérsmíðaðri innréttingu, flísar á milli skápa. Útgengt á stóran pall til suðurs þar sem útsýni er glæsilegt
Svefnherbergi er rúmgott með fataskáp og flísar á gólfi.
Undir stiga er tengi fyrir þvottavél.

Gestahús/vinnustofa
Byggt árið 2003 sem vinnustofa og sýningarsalur. 
Stórt opið rými með góðri lofthæð og stórum gluggum til suðurs.
Baðherbergi er í húsinu með sturtu.
Væri auðveldlega hægt að breyta skipulagi og gera að aukaíbúð.
Gólf er flotað og málað. 3ja fasa rafmagn og hiti gólfi.

Geymsla, upphituð og einangruð, sem er ca. 35 fm, stendur á lóðinni og nýtist í dag sem vinnurými, geymsla og líkamsrækt. Mætti jafnvel nýta sem svefnaðstöðu. Húsið er langt og mjótt og nýtist vel til ýmissa hluta.

Lóðin er mjög skemmtileg og allt í kringum húsið eru pallar og einnig lítið grillhýsi sem einnig getur nýst sem blómaskáli. Garðurinn er opinn mót suðri og niður í fjöru en með skjólgirðingar til austurs og vesturs.
Gámur (ca. 15 fm) er grafinn undir pallinn og er hann bæði einangraður og með rafmagn og nýtist sem gott geymslurými.

- Eignin er í einkasölu hjá Eignaveri fasteignasölu ehf.

Annað:
-
Hrísey er perla Eyjafjarðar.
- Eign sem vert er að skoða í einstakri náttúruperlu.
- Þök voru yfirfarin og þak endurnýjað að hluta á íbúðarhúsinu 2021.
- Ljósleiðari kominn inn.
- Á síðustu 20 árum hefur verið skipt um allar vatns- og raflagnir sem og allar innréttingar og gólfefni.
- Ýmislegt fylgir með í kaupunum sem kemur sér einkar vel með eigninni t.d. bíll í eynni og stæði í lokaðri bílageymslu í landi.

Nánari upplýsingar veita:
Tryggvi          s: 862-7919   / tryggvi@eignaver.is
Begga           s: 845-0671   / begga@eignaver.is
Arnar             s: 898-7011   / arnar@eignaver.is



 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.